Fréttasafn
Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor
Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni.
Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.
Þótt landið sé hrjóstrugt er það um leið mjög fallegt. Þarna eru klettaborgir, sérkennileg fjöll, uppþornaðir árfarvegir og sléttur inn á milli. Í farvegunum og með fram þeim er gróður og tré. Á búgarðinum er nóg af drykkjarhæfu vatni sem kemur úr borholu. Rafmagn er fengið með sólarorku. Á búgarðinum er skotvöllur upp í 300 metra færi, einnig skeet- og trap-vellir. Aðstaða er fyrir líkamsrækt, tennisvöllur og 15 metra löng sundlaug. Undirritaður lét þó nægja sú ganga sem veiðarnar útheimtu hvað líkamsræktina varðaði. Öll aðstað og þjónusta var til fyrirmyndar á Rooisand.

Fimm veiðimenn úr veiðiklúbbnum “Hot Shot” komu til Rooisand þann 25. maí. Það voru þeir Ólafur Birgisson, Jón Þórðarson, Kristin Eiríksson, Sveinberg Gíslason og Arnar Eyþórsson. Þeir voru við veiðar í átta daga og veiddu samtals 28 dýr. Þar af voru 16 gullverðlauna dýr (trophy) samkvæmt mælingum eftir viðurkenndu mælikerfi.
Þrír íslenskir veiðimenn komu þann 10. maí og voru tveir með konurnar með sér. Í þessum hópi var undirritaður ásamt þeim Sigurjóni Péturssyni og Þóru Hrönn Njálsdóttur og Eyjólfi Þórarinssyni og Karen Steindórsdóttir.
Við sáum strax á fyrsta degi að þarna er um frábært veiðiland að ræða. Landið var áður notað til nautgriparæktunar og þess vegna er þar fjöldi af góðum vatnsbólum sem heldur dýrunum á svæðinu. Skotfæri er 100-300 metrar þarna og hægt að mæla með .300 Win Mag , 7mm Rem Mag og 30-06 sem heppilegum skotstærðum við veiðarnar. Það er ekki skynsamlegt að fara með aflminni skothylki að mínu mati. Veiðidýri eru mörg skothörð, sérstaklega oryx (spjóthafur).
Við keyptum pakkaferð sem innihélt akstur til og frá flugvellinum í Windhoek, gistingu og uppihald í tíu daga og þvott á fötum, átta veiðidaga með leiðsögumanni og sjö veiðidýr. Þau dýr sem voru innifalin í pakkanum voru kudu (skrúfhyrna), oryx (spjóthafur), sebradýr, springbok (stökkhafur), vörtusvín, bavíani og sjakali. Ef veiðimanni heppnast ekki að fella dýr af einhverri þessara tegunda er það endurgreitt að hálfu eða það látið ganga upp í annað dýr.
Veiðimennirnir komu með sín eigin vopn og að eigin vali. Menn voru með ólík skotvopn. Þar má nefna .308 Win., 30-06, .300 Win. Mag., 9,3×62 og .375 H&H. Ég var með 9,3×62, sem er gamalreynt kaliber í Namibíu sem er fyrrum þýsk nýlenda. Það er betra á stuttum færum og getur verið varasamt á lengri færunum. Ég mæli frekar með .30-06 eða .300 Win. Mag. með góðri kúlu. Við notuðum flestir Barnes TSX kúluna og virkaði hún mjög vel. Fláningarmennirnir höfðu á orði að þessi kúla væri að virka vel án þess að skemma mikið af kjöti.
Undirritaður veiddi þrjú dýr, oryx (spjóthafur), sebradýr og springbok (stökkhafur). Ástand hjarðanna á svæðinu var mjög gott og athyglisvert hve mörg gulldýr voru felld í ferðunum. Þar má nefna að springbok antílópurnar sem þeir Jóhann og Sigurjón veiddu mældust 114 punkta en einungis þarf 102 punkta til að fá gullviðurkenningu.
Það má benda á að eftir að stjórnun á veiðum í Namibíu varð að veruleika upp úr 1960 hafa allir dýrastofnar tvöfaldast að stærð.
Á Picasa ljósmyndavefnum má sjá mikið af myndum úr þessari ferð, sjón er sögu ríkari. Smellið hér til að sjá myndagallerý.
Þeir sem vilja nálgast frekari upplýsingar varðandi ferðir sem þessa geta sent fyrirspurn í tölvupósti til johannv@ellingsen.is eða lax-a@lax-a.is.
