Fréttasafn
Nýtt veiðihús hjá Lax-á
Veiðihúsið er í Heklubyggð í landi Svínhaga í Rangárþingi ytra. Húsið er rúmgott með svefnpláss fyrir 6 manns í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu. Gufubað og vöðlugeymsla er í sér húsi. Látum myndirnar tala.....
Eldhús og borðstofa.
Stofan.
Gufubað og vöðlugeymsla í sér húsi.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á til að athuga hvort húsið er laust s: 531-6100
Kær kveðja, Elín Ólafsdóttir, elin@lax-a.is
