Fréttasafn

Gudrun 4

Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

26.5.2010

Hver er veiðikonan?

Guðrún S Ólafsdóttir 47 ára Kópavogsbúi með brjálaða veiði-og útivistardellu.

..Hvar og hvenar hófst þinn veiðiskapur?

Það var að mig minnir í Heiðarvatni í Mýrdal. Þar sem ég er fædd og uppalin í Vík í Mýrdal fór ég þó nokkrum sinnum með foreldrum mínum þangað að veiða. Þegar ég varð eldri fór ég með Hjölla bróður og stundum með strákunum í Vík að æfa okkur að skjóta, þá ýmist með Haglabyssu eða Riffli.

Gudrun 3

..Ég hef heyrt skemmtilegar sögur af því þegar þú tókst Maríulaxinn í Grímsá, segðu mér aðeins frá því?

Ég var í góðra vina hópi. Við vorum með leiðsögumann með okkur. Í nokkurn tíma kastaði ég undir hans leiðsögn en ekkert gekk. Um leið og hann fór valdi ég mér nýja flugu, setti hana sjálf á og eftir eitt til tvö köst þá var laxinn á.

Spurning hvort þetta var heppni !

Gudrun 2 

..Fara konur saman í veiði eins og við karlmenn? Eru þær að  haga sér eins og karlpeningurinn þegar í veiði er komið? Maður hefur heyrt margar sögur en ekki fengið neitt staðfest J?

Hmmm.... eins og maðurinn sagði það sem gerist í veiðiferðum er og verður þar. Ég get lofað þér því að við toppum ykkur.

..Nú fórst þú á Hreindýraveiðar, hvernig var sú upplifun? Fannst þú villimanninn í þér og sérðu þig fara erlendis til að skjóta stærri dýr í framtíðinni?

Já, ég hef farið á hreindýraveiðar, það var á svæði 2 ekki langt frá Kárahnjúkum. Það var mun auðveldara en ég reiknaði með. Það kom mér reyndar á óvart hvað það er stutt í villdýrið í mér.

Já, ég væri alveg til í að fara erlendis til að skjóta. Ævintýramennska á alveg við mig.

Gudrun 1   

..Hvernig er með almennar fuglaveiðar, ferð þú t.d.  á Rjúpnaveiðar, Gæsaveiðar, Önd?

 Veiði á fuglum heillar mig líka Ég hef gengið til Rjúpna en ekki með miklum árangri “enn þá”.

En það breytist vonandi í haust. Er búin að nauða í einum vini mínum um að fá að koma með í Gæs í haust. Vonandi verður af því.

Önd ekki spurning !

..Ef þú mættir velja eina á og  einhvern frægan til að veiða með í Lax á prime time, hvaða á myndir þú velja og hvaða frægu persónu og hvers vegna? 

Ætli að Laxá í Ásum yrði ekki fyrir valinu. Fræg persóna ! Hmmm... verð að hugsa mig um.

Er frekar lítið fyrir þessa svokölluð  frægu.  Ætli Birgitta vinkona mín yrði ekki frekar fyrir valinu. :o)

..Áttu eitthvað gott leynitrix til að deila með lesendum í annaðhvort skot eða stangveiði?

Já, slökkva á símanum, mergsjúga umhverfið og ánna inn um öll vit og njóta þess að vera úti í náttúrunni. Þá er nokkuð öruggt að sá stóri láti sjá sig.

Gudrun 4

..Fyrri viðmælandi hann Magnús, vill spyrja þig eftirfarandi spurninga?

..Ef þú yrðir að hætta að stunda golf, skotveiði eða stangveiði hvað yrði fyrir valinu og afhverju?”

Magnús !  Þessi er erfið. Trúlega yrði það skotveiðin. Sennilega út af því að veiðtímabilin eru frekar stutt, það er heppni ef maður fær úthlutað Hreindýri og Rjúpnaveiðitímabilið er óþolandi stutt.  

..Hvor er meiri veiðimaður þú eða Garðar maðurinn þinn og hvort ykkar sér um að elda villibráðina eða fiskinn á þínu heimili?”

Það er mín skoðun að ég sé betri á rifflinum og hann liðtækari á stöngina  „enn þá“.

Við vinnum vel saman í eldhúsinu. Hann gerir frábæra villibráðasósu og ég sé um steikinguna. Skiptir ekki máli með fiskinn. Hann er frábær hjá okkur báðum.

..Hvaða einstakling velur þú sem næsta viðmælanda og hvers vilt þú spyrja hann að?

Vinur minn er mikill veiðimaður hann heitir Jón Þór Gunnarsson.

"Hefur þú veitt mikið utan landsteinana og áttu þér einhverja uppáhalds á þar?" 

 hvaða á hefur þú farið oftast og hvers vegna ?"

 

..Eitthvað að lokum? (heilræði, veiði, matargerð, eitthvað þessháttar)

Læt sósuna hans Garðars fylgja með fyrir þá sem borða villibráð.

½ lítri Rjómi

250 gr Rjómaostur

2 matsk Mysingur

Ca. ½ dós Oscar villibráðarkraftur

1 dós St.Dalfour  bláberjasulta ( hún er ekki með viðbættum sykri )

Svartur pipar eftir smekk

Gott að nota þurrkaða lerkisveppi úr Hallormstaðaskógi í sósuna. Má líka sleppa.

 

Takk fyrir mig og sjáumst í veiðinni í sumar.

Ég þakka Guðrúnu fyrir spjallið, heilræðin og uppskriftina, megi sumarið verða þér ánægjulegt.

Axelo axelo@lax-a.is

 

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar