Fréttasafn
Góð veiði í Dee þessa daganna - 65 laxar á land í gær
Veiðin í Dee undanfarna daga er búinn að vera nokkuð góð og í samræmi við undanfarin ár. Í síðustu viku veiddust 159 laxar og 82 sjóbirtingar en föstudagur og laugardagur voru óveiðanlegir sökum veðurs. Það gerði mikla rigningu og þrumuveður sem varð til þess að áin hljóp upp. Þegar að sjatna tók í ánni varð veiðin eftir bókinni og á Mánudaginn komu 46 laxar á land. Í gær komu 65 laxar á land, stærsti laxinn var 23 pund og kom á land við Cambus O´May. Veðurspáin framundan er góð, það er spáð hlýindum og góðviðri og við fylgjumst náið með..
Axelo axelo@lax-a.is
