Fréttasafn
Atvinnu minnkabani - Ekki hægt að útrýma dýrinu á Íslandi
Atvinnu minkaveiðimaður segir illa hafa verið staðið að tilraun til að útrýma mink á einstökum landsvæðum. Hann segir ekki hægt að útrýma minknum úr íslenskri náttúru en hinsvegar megi halda honum í skefjum með því að skipuleggja veiðarnar af skynsemi. Umhverfisstofnun stóð fyrir veiðiátaki á mink í Eyjafirði og á Snæfellsnesi á árunum 2007 - 2009 og er áætlað að verkefnið hafi kostað um 160 milljónir í heild.
Alls veiddust 622 minnkar í átakinu, mest fyrsta árið eða meira en helmingur af heildarveiðinni. Í Eyjafirði veiddust 291 minkur en 331 á Snæfellsnesi. Það eru hinsvegar ekki allir sáttir við hvernig staðið var að átakinu.
Reynir Bergsveinsson, minkaveiðimaður, er þeirrar skoðunar að rangt hafi verið staðið að verkefninu. Ekki hafi verið minnsti áhugi á að nota nýja aðferð sem hann hafi sjálfur fundið upp og heiti minkasía. Hann hafi veitt hátt í 200 minka í minkasíurnar sínar undanfarin tvö ár á Snæfellsnesi.
Hann segir menn geta hætt að láta sig dreyma um að útrýma minki. Mörg svæði sé hægt að hreinsa en ekki sé hægt að útrýma minki á annesjum, þar sem ekki sé einu sinni hægt að smala sauðfé. Reynir segir einnig að allt hafi breyst þegar málaflokkurinn var færður úr landbúnaðarráðuneytinu yfir í umhverfisráðuneytið og til Akureyrar. Viðmiðunartaxti hafi nánast ekki breyst frá árinu 1997. Það skipti algjörlega sköpum hvernig greitt sé fyrir veiðarnar.
frétt fengin frá www.ruv.is
