Fréttasafn
Skotveiðimenn eyða vel á annan milljarð króna samkvæmt nýlegri könnun
Íslenskir skotveiðimenn eyða samtals vel á annan milljarð á ári í tengslum við veiðarnar. Þetta eru niðurstöður könnunar sem gerð var við Háskólann á Akureyri. Hinn dæmigerði skotveiðimaður er 42 ára gamall karlmaður. Hann er háskólamenntaður, kvæntur, á tvö börn og býr á höfuðborgarsvæðinu. Hann veiðir helst á suðvestursvæði og hans aðalbráð er grágæs. Þetta er niðurstaða könnunar sem Stefán Sigurðsson aðjúnkt við Háskólann á Akureyri vann en könnunin er hluti af North Hunt verkefninu svokallaða.
Stefán skoðaði sérstaklega hversu miklum peningum hinn dæmigerði skotveiðimaður eyðir í tengslum við veiðarnar og af þeim sem tóku þátt í könnunni var meðaleyðslan um 160 þúsund krónur á ári. Stefán bendir á að svarhlutfallið í könnuninni hafi verið í lægri kantinum. Um 500 manns tóku þátt og útgefin veiðikort á síðasta ári frá umhverfisstofnun voru rúmlega 12 þúsund. Þrátt fyrir það gefur niðurstaðan ákveðnar vísbendingar
Stefán segir mikil sóknarfæri fyrir skotveiðitengda ferðaþjónustu og að þróunin sé sú að skotveiði sé að verða dýrari.
