Fréttasafn
Bændur uggandi yfir auknum fjölda refa
Sauðfjárbændur á sunnanverðum Austfjörðum eru uggandi yfir vaxandi fjölda refa þar í sveit og hafa sent þremur sveitarfélögum á Austurlandi áskorun um að fækka þeim.
Guðmundur Valur Gunnarsson, formaður Félags sauðfjárbænda á Suðurfjörðum segir að ref hafi fjölgað mikið undanfarin ár. Hann sé nánast alls staðar og komi alveg upp að bæjum. Refur sé gríðarlegur skaðvaldur í fuglalífi.
Þá séu sauðfjárbændur ekki síður uggandi yfir því að refurinn komist í fé. Guðmundur bendir á að á haustin þegar mófuglinn og gæsin fari, þá vanti refinn æti og sæki í sauðféð.
Ríkisvaldið áformaði í haust að hætta að niðurgreiða refaveiðar, en horfið var frá því í lok síðasta árs. Refaveiðar eru því áfram styrktar af ríki og sveitarfélögum. En bændum á Suðurfjörðum finnst einfaldlega ekki nóg að gert. Guðmundur segir bændur vilja að hið opinbera komi meira að málinu. Refavandamálið hafi aukist ár frá ári.
Félag sauðfjárbænda á Suðurfjörðum hefur sent Breiðdalshreppi, Djúpavogshreppi og Fjarðabyggð bréf þar sem hvatt er til þess að refastofninum sé haldið í skefjum.
