Fréttasafn
Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Búinn að vera að síðan 1968
Hver er maðurinn?
Björn Björnsson, sölumaður og veiðiáhugamaður.
"hér er Björn með Árna Bald og Óla bróður ´sínum við klakveiðar Tungufljóti haustið 2008"
Hvar og hvernig hófst þinn veiðiferill?
Hann hóst í Laxá í Aðaldal 1968.
Nú hefur þú verið við leiðsögn í Rangánum lengi vel, hvað heillar mest við þessar ár?
T.D. það að langvarandi þurrkar hafa ekki áhrif á Rangárnar, það heillar.
Er eitthvað leynitrix sem gott er að hafa á bakvið eyrun þegar veitt er í Rangánum?
Nei, í raun ekkert sérstakt nema þá helst að fara varlega, þó stórar séu, þarf samt að fara varlega, fiskurinn er styggur.
"Allt keingbogið og sennilega risi á hinum endanum hjá Birni í Ponoi 2008"
Nú fórst þú til Rússlands að veiða, hvernig var sú upplifun?
Hún var ógleymanleg, ég var sérlega heppinn með veður, hita og vatnsmagn í ánni Ponoi. Afburðar góð veiði og engin fluga.
Ég frétti af þér í sólinni að veiða yfir hátíðirnar, lágu margir í valnum eða varstu meira í afslöppun?
Þetta var eingöngu afslöppun þó svo að meginhluti ferðarinnar hafi verið á hafi úti.
Sumarið 2010 – spáin, hvað á eftir að koma á óvart? Hver verður á toppnum?
Tungufljótið á eftir að koma á óvart en Ytri Rangá verður á toppnum.
Hvert verður aðal leynivopnið í Rangánum í Sumar að þínu mati?
Það verður örugglega ,,Bismo-inn" hans Skúla.
Hver er stærsti fiskur sem þú hefur veitt og hvar var það?
Hann var 19 pund úr Norðlingafljótinu.
Eitt að lokum, hver er besti veiðimaðurinn á Íslandi í dag?
Það er sá veiðimaður sem allir vilja veiða með, sem hefur sérstaklega að leiðarljósi tillitssemi við aðra veiðimenn og veiðifélaga.
"Hér er Björn einbeittur í Rangánum"
Síðasti viðmælandi okkar hann Skúli spurði þig eftirfarandi spurningar.
"Hvaða fugl er fallegastur við ána?"
Ég svara því þannig: Allir þessir skrýtnu leiðsögumenn við Eystri Rangá og allir steinarnir í kring!
Mín tillaga er að þú talir við Jón Björn Ólafsson og spurningin til hans er:
Hvaða á á Íslandi er mest í uppáhaldi hjá þér?
Heimasíðan þakkar Birni fyrir viðtalið..
kv..
Axeló
