Fréttasafn
Framkvæmdir og breytingar á veiðihúsum hjá Lax-á 2010
Sumarið 2010 verður nýtt sumarhús tekið í notkun í Heklubyggð, það verður leigt með Galtalæk og efra svæði Ytri Rangá. Húsið mun ekki fylgja með veiðileyfum en hægt að leigja það með ef vill ef það er laust.
Á svæði 4 í Blöndu verða Eiðsstaðir áfram notað sem veiðihús. Það er rúmgott 2ja hæða hús. Við Langadalsá við Ísafjarðardjúp er Eldvantshúsið komið upp við góðan orðstír, það er 16 manna hús með stórri verönd.
Við Hvannadalsá er nú notað veiðihúsið sem var við Langadalsá og er í skoðun að gera það upp.
Í Víðidalsá munu koma ný húsgögn í matsal og gestaherbergi verða máluð.
Það er komið nýtt og betra hjólhýsi á silungssvæðið við Víðidal svo ekki væsir um veiðimenn þar.
Á svæði 2 í Blöndu munu veiðimenn gista í Hólahvarf í svefnpokaplássi og fá morgunverð og kvöldverð og góðu verði.
Við Hólsá er hús í byggingu og er það staðsett við veiðistaðinn Borg. Þar verða 4 herbergi, eldhús og salerni.
