Fréttasafn
Fréttir frá Bella Vista - Stærsti fiskurinn var 19 pund
Veiðin er kominn á fleygiferð í Argentínu og er það almennt umtalað af veiðimönnum að veiðin sé í betri kantinum miðað við síðast liðin ár. Í Bella Vista, Rio Gallegos, var veiðin mjög góð, meðalþyngdin var 11.47 pund. Menn voru að nota Tvíhendur með flotlínum og sökkenda, stripp tæknin virkaði vel sem og gamla góða djiggið.
Vinsælusti flugurnar voru litlar einkrækjur með væng í einum lit! Þær fjólubláu voru að virka best. Heildarveiðin var 62 fiskar, sá stærsti var 19pund og allur fiskurinn var nýgenginn og fallegur í holdi. Vatnsmagnið í ánni er í toppstandi, hitastigið er við kjörhita en mikill vindur var alla vikuna sem gerði þeim eldri erfitt fyrir..Axelo axelo@lax-a.is
