Fréttasafn
Fyrsti vorboðinn – Svartfugl kominn í Ystaklett
Fyrsti vorboðinn í hugum margra íbúa Vestmannaeyja birtist í gær, óvenju snemma, þegar svartfuglinn settist í Bergið í Ystakletti. Að sögn heimamanna er þetta með fyrsta móti en í fyrra settist svartfuglinn upp 15. febrúar. Hlýtt hefur verið í Eyjum að undanförnu miðað við árstíma
Aðallega er um að ræða Langvíu en einnig Álku og Stuttnefju. Að sögn Sigurgeirs Jónassonar, ljósmyndara í Vestmannaeyjum, sest Svartfuglinn venjulega upp um miðjan Febrúar og svo virðist sem það fylgi því oft þegar loðnan gengur suður með landinu.
Áhugasamir veiðimenn geta haft samband við skrifstofu Lax-á en við erum með góðar ferðir á Svartfugl í boði.
axelo@lax-a.is 531-6108
Fréttin er fengin af vef mbl
