Fréttasafn
Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Er gamall og ryðgaður Þingeyingur málið?
Hver er maðurinn?
Björn Þór Guðmundsson
Heyrst hefur að þú sért þvílík aflakló, er eitthvað til í því?
Hehehe, nei nei, ég er allur að koma til og verið þokkalega heppinn undanfarin ár þó að ég vilji gera betur og alltaf að læra eitthvað nýtt.
Hvar á að fara að veiða 2010?
Það fer eftir því hvað er laust hahahahahahahaha.. Fer a.m.k. í Langadalsá, Y-Rangá, vonandi Víðidalinn a.m.k. einu sinni, helst Blöndu og svo verð ég að komast í E-Rangá

Lumar þú á leynivopni í veiðitöskunni ef allt annað klikkar?
Nei, en einu sinni var treg veiði hjá mörgum í holli sem ég var í, við pabbi settum ljótann og gamlann Þingeying á og mokuðum upp nokkrum löxum á stuttum tíma með honum.
Hver er þín uppáhaldsveiðiá og hvers vegna?
Ennþá er það Laxá í Aðaldal sökum þess að þar hef ég fengið minn stærsta lax hingað til en Víðidalsáin kom rosalega sterk inn hjá mér í sumar sem leið og hlakka ég til að komast þangað aftur og læra betur á hana. ( Vona ég komist á góðum tíma en lítur ekki vel út sökum vinsælda)
Nú sérð þú um viðhald á öllum veiðihúsum Lax-á, þú settir upp nýja veiðihúsið við Langadalsá, er einhverjar aðrar breytingar fyrirhugaðar?
Jájá, það eru fyrirhugaðar miklar og tímabærar framkvæmdir við Ytri Rangá, við byrjum í vor og tökum þetta svo 1 skref í einu. Ennig er verið að smíða veiðihús við Galtalæk sem verður hið fínasta með gufu og alles (A.K.A. Marengsinn) og efri hluta Y-Rangár, en þessi hús verða tilbúin í vor eða byrjun sumars og veiðihús í Tungfljóti er á dagsskrá fljótlega.
Ef þú ættir að velja á milli flugu eða maðks, hvort yrði fyrir valinu og hvers vegna?

Eingöngu fluga og ekkert annað. Eina sem ég kann og mig langar ekki að læra hitt:-)
Hver er besti veiðimaðurinn á Íslandi?
Ekki spurning "Arnie Bald" hahahahahahaha ( get ég sagt annað?)
Á hvern bendir þú sem næsta viðmælanda og hvaða spurningu fær hann frá þér?
Ég bendi á Skúla Kristinsson leiðsögumann í Eystri Rangá og spyr hann hver verði besta flugan í Eystri Rangá og hversu margir fiskar eiga eftir að veiðast á hana..?
Eitthvað að lokum?
Hehe.. Já mér finnst þið heldur drjúgir að selja allt það besta þannig að það er orðið fátt um fína drætti fyrir mig ;-)
Nei nei hlakka bara til komandi sumars..
Við þökkum Birni fyrir viðtalið og óskum honum góðrar veiði í sumar.
