Fréttasafn
Árleg byssusýning veiðisafnsins – Sjón er sögu ríkari
Starfsár Veiðisafnsins á Stokkseyri 2010 hefst með árlegri byssu sýningu í samvinnu við verslunina Vesturröst laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. febrúar 2010 frá kl. 11-18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Verður fjölbreytt úrval skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, vélbyssur, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá seinni heimstyrjöld í eigu Hinriks safnara til sýnis og ein af haglabyssum Jóns Þorsteinssonar frá Ólafsfirði.
Einnig verða til sýnis byssur frá Veiðisafninu sem ekki tilheyra grunnsýningu safnsins og skotvopn úr einkasöfnum m.a. annars frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni og fjölmörgum öðrum aðilum að ógleymdum Drífu-haglabyssunum frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík.
Veiðisafnið er einstakt á landsvísu en hvergi á Íslandi er hægt að sjá jafn fjölbreitt úrval uppstoppaðra veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra muna en hér ásamt því að fræðast um veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúruvernd .
Einstök uppsettning grunnsýningar safnsins er margrómuð en auk hennar eru settar upp sérsýningar árlega og má þar nefna byssusýningu og snertisafari – sýningu fyrir sjónskerta og blinda. Jafnframt kynningu til komandi kynslóða er varðar veiði og veiðirétt með aðaláherslu á náttúruvernd og skynsemisveiðar.
Miklar endurbætur og viðgerðir eftir jarðskjálftan mikla hafa átt sér stað í vetur á Veiðisafninu og ber að nefna stækkun á eldri sýningarsal safnsins ásamt endurskipulagningu sýningarmuna og einnig hafa verið settar upp ljósmyndir frá veiðiferð til Suður Afriku sem farin var í nóvember 2009.
Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er óbreyttur kr.1000 fl. og 500 kr. börn 6-12 ára.
Veiðikveðjur
Axeló
