Fréttasafn
Gallery flugur með fjölbreytt vöruúrval - Kíktu við
Það hafa verið miklar sviptingar á veiðibúða markaðnum undanfarið, mikið um að stórir aðilar kaupi litlu kallanna. Einn er þó ekki til sölu, svo er víst, en það er hann Viddi hjá Gallery flugum, en líf hans hefur snúist meira en minna um flugur og fluguveiði. Ég heyrði í Vidda og fékk í gott spjall..Axelo
Hver er maðurinn?
Ég heiti Viðar Egilsson og ég er búinn að vera viðloðandi veiði, fluguhnýtingar og veiðileiðsögn í gegnum tíðina. Líf mitt hefur snúist meira og minna um flugur og fluguveiði.

Hér er Viddi með smálax úr bæjarlæknum Elliðaám..
Segðu mér frá þér og Gallery flugum Batteríinu..?
Ég stofnaði netverslunina galleriflugur.is árið 2004 og hefur hún vaxið jafnt og þétt síðan. Ég opnaði svo verslunina í 20 fermetra herbergi í kjallaranum heima hjá mér tveimur árum síðar. Það má segja að ég hafi stækkað verslunina um helming þegar bílskúrinn var innréttaður í desember 2008. Ég var mjög lánsamur þegar ég áskotnaðist nafn LITLU FLUGUNNAR frá þeim hjónakornum Valgerði og Árna hjá Laxá. Þannig að í dag heitir búðin LITLA FLUGAN en vefurinn galleriflugur.is.

Hvað er á boðstólum í búðinni, hverjar eru áherslurnar?
Ég legg áherslu á gott úrval af önglum t.d. frá Partridge, Ken Sawada og fleirum. Þá legg ég metnað í að vera með gott úrval af alls konar fluguhnýtingaefni og reyni að bjóða upp á gott hráefni á sanngjörnu verði. Ég hef líka verið að bjóða upp á fluguhnýtingapakka fyrir byrjendur og lengra komna og reyni þá að velja í pakkann eftir þörfum og áhuga hvers og eins. Ég hnýti nánast allar flugur og túpur sjálfur sem eru til sölu í búðinni. Ég reyni að hnýta sem mest yfir svörtustu skammdegismánuðina því með hækkandi sól gefst minni tími til að hnýta því þá er meira að gera í búðinni.
Hver er vinsælasta flugan í dag?
Vinsælasta flugan í dag – það er góð spurning. Ég er mjög hrifinn af Dimmblá eftir Þórð Pétursson, hún hefur verið fengsæl og vinsældir hennar hafa aukist jafn og þétt.

Eitthvað sérstakt sem kom þér á óvart í sumar?
Það sem kom mér mest á óvart síðasta sumar var hversu vel veiddist þrátt fyrir sólríka og þurra daga. Þá kom mér einnig á óvart hvað menn voru óragir við að prófa nýjar flugur og túpur, mér finnst menn ekki einskorða sig eins mikið við þessar „gömlu góðu“ þótt flestir hafi þessar skotheldu með í boxinu. Það kom mér líka skemmtilega á óvart hversu vaxandi áhuginn er á meðal ungs fólks. Veiðin er greinilega „inni“ eins og sagt er.
Verður þú með einhverjar nýjungar á boðstólum í sumar?
Í sambandi við nýjungar í efnisvali og önglum þá legg ég mig í líma við að bjóða upp á „nýtt“ efni í bland við hið „klassíska“ sem verður alltaf að vera á boðstólnum. Sem dæmi þá sel ég tvinna frá Danvilles, er með vörur frá EUMER sem sérhæfa sig í öllu tengdu túpum t.d. frábæra túpuhaldara. Þá er gaman að segja frá því að Partridge eru komnir með nýjar stærðir í Wilson tvíkrækjum í stærðum 18 og 20 og í þríkrækjum X2B, X2S og X2G í stærðum 18 og 20. Einnig eru nýjar stærðir, 13 og 15, í SALAR hnýtingatvíkrækjum. Þessir nýju önglar koma skemmtilega á óvart. Ekki má heldur gleyma því allra nýjasta frá Partridge en það eru agnaldslausar túbueinkrækjur fyrir þá sem eru í veiða-sleppa.

Nú ert þú með Stroft taumaefnið sem er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég mæli eindregið með, hver hafa viðbrögðin verið?
Viðbrögðin við Stroft taumefni hafa bara verið jákvæð. Menn hafa almennt verið ánægðir. Ég hef sjálfur verið að prófa þessi taumefni og þau hafa reynst virkilega vel. Sérstaklega GTM taumefnið sem hefur verið vinsælast af þeim gerðum sem ég býð upp á.
Lumar þú á leynivopni í veiðitöskunni ef allt annað þrýtur?
Leynivopnið mitt fyrir lax og silung sumarið 2010 verður ekki lengi leynivopn ef ég ljóstra því upp núna. Ætli ég leyfi mönnum ekki bara að sjá það þegar þar að kemur.
Hvernig lýst þér á sumarið 2010?
Ég er mjög bjartsýnn fyrir veiðisumarið 2010 ég held að það standi alveg undir mínum væntingum. Árið fer vel af stað, fluguhnýtarar eru þegar mættir í búðina að viða að sér efni fyrir hnýtingarnar.
Við þökkum Vidda fyrir gott spjall og hvetjum menn að gera sér ferð til hans í kaffi, það er með ólíkindum hvað maður finnu hjá honum, einnig er hægt að kíkja á www.galleryflugur.is og skoða úrvalið þar..
Veiðikveðjur
Axeló
