Fréttasafn
Laxveiðiáin Dee opnar í Skotlandi í dag – Veðurútlit er gott fyrir veiðimenn
Hin vel þekkta Laxveiðiá Dee í Skotlandi opnaði fyrir veiðimenn nú í morgun. Ég tók símann á Robert Harper sem stýrir veiðunum og spurði hann út í ástandið á ánni, veðri og fleira. Hann var reyndar á fullu í að fylgjast með svæðunum en hann hafði ekki heyrt neinar fréttir ennþá. Mikill snjór er ennþá á svæðinu, þó er áin í góðu standi og veðrið gæti ekki verið betra til veiða.
Fyrir þá sem ekki muna hvernig tímabilið hófst í fyrra þá er ágætt að rifja það aðeins upp en það var mikill kuldi í upphafi og erfiðar aðstæður fyrir veiðimenn almennt. Febrúar var rólegur í veiðinni og töluvert undir meðalári. Veðurspáin framundan er hagstæð fyrir veiðimenn og því verður gaman að fylgjast með á næstu dögum hvernig gengur.
Kv. Axelo
