Fréttasafn
Bóndadagur í dag – Táknar upphaf Þorrans
Þá er þorrinn loksins runninn í garð og framundan eru þorrablót og veislur þar sem þjóðin gæðir sér á hinu alíslenska fyrirbrigði Þorramat. Þorrablótum fylgir alltaf góð skemmtun, sögur og skrýtnir drykkjuleikir, og gíska ég á það að mikið af veiðmönnum detti saman í vinahóp og fái sér nokkra kalda. Í tilefni dagsins er tilvalið að fræðast á skemmtilegan hátt, njótið dagsins.
Hér er ein stutt og skemmtileg saga sem á vel við..
Hjónin sátu og ræddu um lífið og dauðann. Þar kom að eiginmaðurinn sagði að hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með tækjum og fljótandi næringu. Eiginkonan brást skjótt við, slökkti á sjónvarpinu og hellti niður bjórnum hans !! ;o)
Og svo smá fróðleikur um nýjunga á þorranum í ár..
Ölgerðin sendir þorrabjór í vínbúðir og á veitingastaði í dag á bóndadaginn sem markar upphaf þorra. Þorrabjórinn er að þriðja hluta gerður úr íslensku byggi sem er ræktað á bænum Belgsholti í Melasveit á Vesturlandi. Ölgerðarin segir, að þorrabjórinn sé 5,6% af styrk og er í stíl við þýskan festivalbjór. Auk íslenska byggsins sé í honum Pilsen korn og nokkuð af Munchen maltkorni, sem gefi honum ögn dekkri lit en algengustu lagerbjórum. Humlarnir í Þorrabjór séu svokallaðir aromahumlar, eða ilmhumlar, sem séu ekki eins bitrir og venjulegir humlar.
Með von um ánægjulegan bóndadag
Veiðikveðjur
Axeló
