Fréttasafn
Vikan fer vel af stað í Rio Grande - Mun betri byrjun en í fyrra
Ég var að fá fréttir frá Bella Vista lodginu í Rio Grande ásamt myndum en veiðin þar er heldur betur að fara vel af stað. veiðimenn byrjuðu á laugardag og á fyrsta klukkutímanum voru komnir 5 risa birtingar á land, áin er í toppstandi, flott vatnsmagn, gott hitastig, sannkallaðar kjöraðstæður. Hér að neðan má sjá káta veiðimenn með alvöru birtinga, sannkölluð stórveiði. Sem fyrr býður Lax-á uppá ferðir til Argentínu, við eigum örfár stangir lausar í mar-apríl, áhugasamir geta haft samband við axelo@lax-a.is
