Fréttasafn
Tímabilið er hafið í Rio Grande - Villa Maria fer fyrst af stað með flottri veiði
Tímabilið er hafið í Argentínu og fyrstu veiðimennirnir voru að ljúka veiðum nú um helgina. Þeir voru að veiða í Rio Grande á svæði Villa Maria, þeir fengu 70 fiska, alla bjarta og flotta, sá stærsti var 23 pund. Mest megnis voru menn að veiða með einhendum, flotlínum og á litlar flugur. Áin er á hraðri niðurleið í vatnsmagni og má geta sér til þess að þessvegna sé veiðin svo góð en þetta er helmingi betra en á sama tíma í fyrra. Hitastigið í ánni er um 13 °c. Við fáum nú nýjar fréttir í hverri viku af öllum helstu veiðisvæðunum en Lax-á sendir fjöldan allan af veiðimönnum ár til Argentínu.. Axelo axelo@lax-a.is
