Fréttasafn
Rjúpa á faraldsfæti - 46 km frá varpstað
Rjúpa sem var merkt við Hallbjarnastaði á Tjörnesi 18. maí í fyrra endaði líf sitt á Grenivíkurfjalli 8. nóvember sl. þegar veiðimaður skaut hana. Frá þessu er greint á heimasíðu Tjörneshrepps. Á rjúpuna var einnig fest senditæki og var því unnt að fylgjast með henni í sumar og haust.
Rjúpan verpti í nágrenni Hallbjarnarstaða og var allt síðasta sumar með níu unga í innan við 100 metra fjarlægð frá hreiðurstað. Það síðasta sem sást til rjúpunnar var 8. september þegar reynt var að ná senditækinu af henni. Sem fyrr segir var það síðan 8. nóvember sem veiðimaður skaut rjúpuna á Grenivíkurfjalli - 46 kílómetrum frá varpstað.
