Fréttasafn
Vísindamenn í Ástralíu - Reyna að rækta umhverfisvænni kindur!
Vísindamenn í Ástralíu vonast nú til þess að geta ræktað kindur sem menga minna. Að sögn vísindamannanna reyna þeir nú að komast að því hvað veldur því að sumar kindur ropa minna en aðrar, og eru þannig umhverfisvænni. Að þeirra sögn eru ropar kindanna mun meira mengandi en annar vindgangur. Þótt vitað sé að því meira sem kindurnar borði, því meira ropi þær, skýrir það alls ekki allt. Um sextán prósent þeirra gróðurhúsalofttegunda sem Ástralir losa árlega kemur frá Landbúnaði.
Það er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast hjá vísindamönnum!!
kv
Axeló
