Fréttasafn
Rjúpnaveiðin um helgina – Veðrið spilaði stórt hlutverk
Nú um helgina var 3ja helgin á rjúpnatímabilinu, mikið af veiðimönnum fóru um allt land og reyndu að ná drottningu villibráðarinnar fyrir Jóladiskinn, heimtur voru þó annsi misjafnar, margir gripu í tómt, aðrir náðu einhverju, fáir voru að ná í mikinn fjölda. Spilaði veðrið þar stórt hlutverk enda mikið rok og rigning, leiðindaveður alveg hreint.
Þeir veiðimenn sem ég talaði við í morgun voru allir á sama máli að veiðin hefði verið dræm og veðrið verið hrútleiðinlegt. Á Fljótsdalshéraðinu heyrði ég í heimamönnum sem frekar völdu sér bæjarstörf en rjúpnagang, það þýddi hreinlega ekkert að fara af stað. Nokkrir veiðimenn gerðu sér ferð á Fellströndina og ætluðu sér að hafa það huggulegt í húsi og á rjúpu, þá bar að Tengdaforeldrum og huggulegheitin fóru fyrir bí, nei nei sma útúrdúr en þeir náðu í 13 fugla, sáu ekki mikið meira. Veiði gúrúinn Sigmar B. Hauksson fór á Þorkafjarðarheiðina og náði sér í 3 rjúpur, hann er sennilega kampakátur með þann feng, enda 3 rjúpur meðal skammtur fyrir fullorðinn mann á Jólunum, eða hvað? Þeir veiðimenn sem fóru á Skagaheiðina sáu fugla og eltu mikið, þar vantar allan snjó og allur fugl mjög hátt uppi, það var mikið rok og aðstæður erfiðar, náðu 17 fuglum sem verður að teljast þokkalegt miðað við aðstæður. Hornfirðingar töluðu um kropp, sama sagan þar, sjólaust, rok og rigning.
Það má alveg spyrja að því hvorki ekki sé nær að færa veiðitímabilið örlítið lengra inn í December mánuð, fækka helgunum í Nóv, það er yfirleitt kominn meiri snjór um allt land þegar líða fer á December. Það ætti ekki að hafa áhrif á Rjúpuna þar sem hún er auðséð bráð eins og aðstæður eru nú, en dæmi hver fyrir sig.
Almennt eru menn þó ánægðir með feng sinn og stofninn virðist vera á uppleið.
Veiðikveðja
Axeló
