Fréttasafn
Helgin var góð á Villa Maria svæðinu í Rio Grande - Argentínu
Árni Bald er við veiðar núna í Argentínu ásamt félögum, en þeir eru að veiða í Villa Maria í Rio Grande. Það hefur verið vindasamt eins og oft vill vera þar. En þrátt fyrir það er veiðin stórkostleg, stærsti fiskur á land um helgina var 33 pund og þeir voru að landa svona um 30 að meðaltali á dag. Fáir fiskar voru undir 20 pundum. Við munum fá glóðvolgar fréttir á næstu döhum með nýjum myndum og birtum þær um leið og þær berast.. axelo@lax-a.is
