Fréttasafn


Hvernig fara talningar fram á Hreindýrum – Heilmikill fróðleikur hér að neðan

20.1.2009

Fyrsta opinbera talningin á hreindýrum var haustið 1939 en þá fór Helgi Valtýsson að tilstuðlan Viðskiptamálaráðuneytisins ríðandi í Kringilsárrana til að telja hreindýr. Þann 22. desember sama ár voru samþykkt lög frá Alþingi þar sem heimilað var að skipa sérstakan hreindýraeftirlitsmann og skyldi hann meðal annars fylgjast með fjölda og dreifingu dýranna. Friðrik Stefánsson bóndi á Hóli í Fljótsdal var ráðinn fyrsti hreindýraeftirlitsmaðurinn. Fór hann ríðandi um Fljótsdalsöræfi næstu tíu árin og taldi hreindýrin. Ekki var talið árin 1951-1953 en Friðrik taldi aftur árin 1954-1955. Árið 1956 var flugvél notuð í fyrsta sinn við talninguna og hefur það verið svo síðan..

Hreindyr_linurit

Fyrstu árin var um heildartalningu stofnsins að ræða þar sem öll dýrin dvöldu í sumarhögum í nágrenni Snæfells. Eftir því sem dýrunum fjölgaði og þau dreifðust meira um Austurland náði talningin til minni hluta heildarstofnsins. Ástæða þess að dýrin voru ekki talin á öllu svæðinu var sú að erfitt og hættulegt gat verið að leita þeirra í þröngum dölum Austfjarðafjallgarðsins úr flugvél. Árið 1981 var skipulögð heildartalning með aðstoð eftirlitsmanna hreindýranna. Auk hefðbundinnar talningar úr flugvél á Fljótsdalsöræfum töldu eftirlitsmenn á öllu Austurlandi hreindýr í sínu sveitarfélagi..

Hreindýr

Hreindýrin heyrðu lengst af undir Menntamálaráðuneytið sem kostaði talningu þeirra. Með stofnun Umhverfisráðuneytisins árið 1990 vistuðust hreindýrin hjá Veiðistjóraembættinu sem sá um talningar þar til vöktun stofnsins var flutt til Náttúrustofu Austurlands árið 2000..

Talning_a_Hreindyrum

Frá og með 1991 hafa hreindýr verið talin tvisvar á ári, það er í flugtalningu á Snæfellsöræfum í júlí og vetrartalningu á öllu Austurlandi í mars þar sem talningarmenn í hverju sveitarfélagi, þar sem hreindýr ganga, telja dýrin með hjálp tiltækra ökutækja..

Axeló á Hreindýri8

Í stuttu máli fara hreindýratalningar þannig fram í dag að í júlí er flogið yfir Snæfellsöræfi, hreindýrahjarðirnar myndaðar og síðan talið af myndunum. Þar má greina á milli fullorðinna dýra og kálfa. Náttúrustofa Austurlands skipuleggur síðan aðra talningu í mars, sendir völdum talningarmönnum eyðublöð til útfyllingar og upplýsingar um hvenær eigi að telja. Talningarmennirnir hafa viku til verksins og hafa þeir samráð sín á milli til að fyrirbyggja tvítalningu..

Upplýsingar í greinina fengnar hjá Náttúrustofu Íslands.

axelo@lax-a.is



 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar