Fréttasafn

Andreas102

Noregur er kominn á kortið - Allar upplýsingar hér á síðunni hafa verið uppfærðar

5.1.2009

Lax-á býður upp á frábæra Laxveiði í Noregi

Komdu með Lax-á í Stórlaxa ævintýri

n13

Noregur er land fullt af stórum fjörðum og vígalegum skógi vöxnum fjöllum. Frábær veiðisvæði, stórfenglegt útsýni og ein besta stórlaxa veiði í heiminum í dag. Tækifærin eru mörg, Atlantshafs lax, bleikja, stór urriði og sjóbirtingur, allt þetta og meira til í næsta nágrenni..

Norway

Það er okkur sönn ánægja hér hjá Lax-á að bjóða þér kæri veiðimaður, upp á þetta einstaka tækifæri á að komast í færi við þann stóra. Njóta þín í guðsgrænni náttúrunni, lykta af sumrinu, villt blóm og stökkvandi fiskur um allt í nýju umhverfi þar sem hver dagur kemur með hið óvænta og gleður þig út að eyrum..

n1

Sumum fynnst kannski svolítið langt að ferðast alla leið til Noregs til að fara í Lax en fyrir aðra er hér kannski um að ræða hina sannkölluðu Pílagrímsferð. Tækifæri til að feta í fótspor þeirra mörgu veiðimanna hvaðanæva úr heiminum sem veitt hafa í fjölmörgum stórlaxaám Noregs í áratugi og látið vel af. Og ekki má gleyma að Víkingarnir komu til Noregs svo segja má að þú sért að halda á fornar slóðir þeirra..

11n

Ferðalagið í dag er ósköp einfalt og þægilegt en flogið er daglega á Noreg svo þú getur farið að morgni og verið byrjaður að dýfa flugunni í vatn seinnipartinn.  Við hér hjá Lax-á erum í góðu samstarfi við mörg flugfélög í heiminum og að sjálfsögðu okkar heimaflugfélag Icelandair en þeir þjónusta einmitt Noreg..

 n2

Það er mikil fjölbreytni í veiðinni í Noregi og búast má við að landa mörgum tegundum af ferskvatns fiski eins og kom fram hér að ofan. Það eru mjög góð uppeldisskylirði fyrir þessa fiska og því oft mikið fjör á bökkunum.  Markmið Lax-á í Noregi er einfalt en það er að einfalda Íslenskum veiðimönnum að víkka út hjá sér veiðihringinn og finna nýja heima í Laxveiðinni.  Og við teljum Noreg vera stað til þess.  Lax-á er í mjög góðu samstarfi við heimamenn og hefur yfir allra bestu svæðum úr að velja. Þannig getum við lagt okkar að mörkum til að gera ferðina eftirminnilega og fulla af hinu óvænta sem væntalega eru 2ja stafa tölur í pundum..

Norway 

Veiðihús er öll til fyrirmyndar með þjónustu sem er á heimsmælikvarða, frábær matur, góð hvíldaraðstaða og kósýheit.  Leiðsögumenn eru reyndir og þekkja vel til aðstæðna. Það getur verið góð lausn hjá fyrirtækjum að bjóða starfsfólki, vinnuhópum og þessháttar til Noregs því öll veiðihúsin geta verið prívat og eru með allann fundarbúnað sem til þarf ef menn kjósa svo..

a2 

Veiðsvæðin eru annsi mikil og oft þarf að ferðast á milli á bátum en svo eru önnu svæðin minni eins og sjá má á myndinni hér að ofan, hreint út sagt geggjað umhverfi að veiða í. Samanlagt í Noregi er um 400 laxveiðiár.. 

 

Hreint loft, Gin tært vatn, mikið svæði fyrir veiðarnar, gott veðurfar er það sem heillar menn við Noreg. Heimamenn eru einnig afar stoltir af þessari perlu og það er annsi gaman að taka smá rökræður við þá um hvort sé betra að veiða lax á Íslandi eða í Noregi. En hvað stærð á Laxi varðar þá hafa þeir vinninginn.  Láttu það eftir þér að kíkja á frændur vora og renna fyrir Stórlaxi einum af þeirra veiðiperlum..

DSC00019 

Laxveiðiárnar í Noregi eru annsi duglegar þegar kemur að uppeldi Atlantshafs laxins og nú undanfarin 3 ár hafa miklar breytingar orðið á veiðinni sérstaklega vegna þess að öll netaveiði hefur verið bönnuð í þeim fjörðum þar sem helstu veiðiárnar eru. Meðal þyngd á Laxi er 2ja stafa tala og smálaxinn er vænn líka..

Yellow Shadow Shrimp 

Hér má sjá eina Klassíska Laxveiðiflugu sem mikið er notuð í Gaula, ekki ýkja langt frá því sem gengur og gerist á Íslandi. Hér að neðan má sjá veiðihús úr lofti en veiðihúsin sem við verðum með eru öll fyrsta flokks og sniðin að þörfum allra veiðimanna..

n10

 

Lax-a rod 

Fyrir Íslenska veiðimenn er veiðiútbúnaður sem nota þarf í Noregi svipaður þeim sem við notum hér heima.  Tvíhendur eru nauðsynlegar og menn þurfa helst að kunna vel á veltiköst til að koma flugunni á rétta staði því mikið er af trjám á bakvið mann við veiðarnar.  Vöðlurnar og hlýr fatnaður eru nauðsynlegur hluti af ferðinni en vatnið í ánum getur verið annsi kalt.  Nauðsynlegt er þó að vera með flotlínu, sökklínu, sökkenda og intermediate línu til að vera undirbúinn í hvaða aðstæður sem er..

Norway 

Lax- á býður þig velkominn með sér til Noreg 2009, við hlökkum til að heyra frá þér og skipuleggja frábæran veiðitúr á framandi slóðir sem skapar góða minningu að eilífu..

n5

Veiðisvæði Lax-á í Noregi 2009 eru eftirfarandi, Malselv, Abjora, Namsen, Orkla og hin ógleymanlega Gaula..

 

Allar frekari upplýsingar má fá hjá okkur, sláðu á þráðinn eða sendu póst

 

Axel Óskarsson   axelo@lax-a.is

snr..  00354-5576100


Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

snr..  00354-5576100



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar