Fréttasafn
Veiðitímabilið er hafið í Argentínu – Hér eru nýjustu fréttirnar
Góðvinur okkar hér á skrifstofu Lax-á, HR Serge Dompierre var við veiðar í Rio Grande í gær og lenti í “once in a life time” uppákomu en hann stakk sér til sunds í sjálfri drottningunni á meðan hann barðist við 18 punda nýgenginn sjóbirting.! Að sjálfsögðu missti hann fæturna undan sér í spenningnum óvart, enda var þetta fyrsti fiskurinn hjá honum á tímabilinu. Það er meira vatn í ánni núna en á sama tíma og undanfarin 2 ár og eru leiðsögumenn við ánna að vonast til að það gangi meira af fiski á efri svæðin sökum þess, en nú þegar er allt orðið fullt af fiski á neðri svæðunum. Ég mun verða reglulega með nýjar fréttir frá þessum veiðislóðum nú í vetur en líkt og undanfarinn ár mun Lax-á að sjálfsögðu bjóða upp á ferðir þangað út.. og nú í ár bjóðum við uppá mun fleiri og spennandi svæði en áður.. axelo@lax-a.is
Bestu Kveðjur
Axel Óskarsson
557-6100
