Fréttasafn
Ný fisk tegund á Íslandsmiðum
Þessi mynd var tekin í síðustu viku við Sandgerðishöfn, en hér heldur Rúnar Karl kokkur á Erling KE-140 á Stóra Brama sem veiddur var 12 sjómílur fyrir utan Vík í Mýrdal. Rúnar sagði við fréttmann Freisting.is að hann hafði eldað Stóra-Brama við góðar undirtektir og skipverjar gengu saddir og glaðir frá borðhaldinu.Þessi fisktegund hefur öðru hvoru veiðst við Íslandsstrendur en svo virðist sem menn verði meira varir við hann núna. Hvort það tengist hlýnun sjávar eða öðrum breytingum á náttúrunni er ekki hægt að fjölyrða um.
Heimkynni Brama-fisks er í Norðursjónum og í hlýrri hlutum Atlantshafsins. Hann er silfurlitaður og svartur, ekki ósvipað og síld, og getur orðið um einn metri að lengd. Algengast er að hann sé á bilinu 40 – 60 sentimetrar.
Vorum við 5 Matreiðslumeistara í vettvangskönnu vegna Galadinners að meistarinn í Bláa Lóninu bauð okkur upp á að smakka þennan furðufisk og voru allir sammála að hér væri bragðgóður fiskur á ferð.
Heyrðum við af því að Fiskmarkaðirnir neituðu að taka hann til sölu hversu fáranlegt sem það getur nú verið og er ég þess handviss að fiskurinn á eftir að ná vinsældum hér á landi og hvet ég sjómenn til að koma með fiskinn beint til matreiðslumannana.. axelo@lax-a.is
grein af freisting.is
