Fréttasafn
Veiðitölur til 28.08.2008
Það heldur áfram mokið í Rangánum, Ytri Rangá er reyndar þetta árið að skjóta systur sinni ref fyrir rass og er komin einhverjum 2000 löxum fram úr. Það má nú ekki afskrifa Eystri en mér sýnist sem svo að Ytri nái nokkuð léttilega að fara upp fyrir 10.000 laxa en Eystri verði í kringum 7000 kannski 8000 laxa sem er auðvita frábær árangur.
Miðfjarðará er búin að vera mjög góð þetta árið og einnig Víðidalsá, þær eru báðar komnar yfir meðaltal seinustu 10 ára. Það háir Blöndu hins vegar að hún fór óvenjusnemma á yfirfall og er búin að vera gersamlega óveiðandi síðan. En með nokkrum góðum haustdögum ætti hún að detta í 1000 +.
Laxá á Ásum er 100 löxum betri í ár en hún var í fyrra, hún mætti samt alveg vera betri en það háir henni eins og öðrum laxveiðiám á norðurlandi að það vantar sterkari smálaxagöngur.
Það vantar inn í þessar tölur t.d. Tungufljótið en það er komið upp í 1300 laxa á aðeins fjórar stangir, ég held að það sé ekki hægt að finna betri fjögra stanga á á landinu.
Hér eru tölurnar til 28.08.08
Ytri Rangá 7250
Eystir Rangá 5040
Miðfjarðará 1185
Blanda 970
Víðidalsá 920
Laxá á Ásum 455
Svartá 188
kv, Arnar
Arnar@lax-a.is
