Fréttasafn
Veðrið
Sumarið hefur verið afskaplega þurrt á öllu landinu og ekki allir með sömu óskir um hvernig veður á að vera, flestir Íslendingar vilja jú sól og blíðu, en svo eru það veiðimennirnir sem þrá rigninguna þessa dagana. Loksins rigndi í gær sem er einnig mjög gott fyrir gróðurinn okkar. En veðurhorfurnar á næstunni eru hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað, en þokuloft eða súld úti við norður og austurströndina og skúrir suðvestanlands. Léttir heldur til síðdegis, en áfram þokubakkar úti við austurströndina. Heldur bjartara veður á morgun. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.
Elva elvahronn@lax-a.is
