Fréttasafn
Þriðjudagsganga í Viðey
Sr. Þórir Stephensen mun á morgun stýra þriðjudagsgöngu í eyjunni fyrir þá sem vilja finna sér eitthvað öðruvísi og skemmtilegt að gera. Sr. Þórir Stephensen er fyrverandi staðahaldari í Viðey og þekkir því vel til þarna, það verður farið um vesturey Viðeyjar og mun sr. Þórir sýna það markverðasta sem er að sjá á eynni. Ferjan fer frá Sundahöfn kl. 19:15 og er farið til baka aftur kl. 21:15.
Elva elvahronn@lax-a.is
