Fréttasafn
Sumarið er komið.....
Eða hvað?
Þannig að ef elta á góða veðrið um helgina ætti líklega að halda norður á land þar sem hitinn verður á bilinu 12 – 17 gráður og nánast úrkomulaust, hlýjast verður á Blönduósi á Laugardaginn og léttskýjað. Á Akureyri verður fínt veður alla helgina og gaman er að geta þess að um þessar mundir er AIM Festival eða Akureyri International Music Festival og er þetta í annað sinn sem þessi hátíð er haldin þar.
Meðal þeirra sem koma fram eru: Fernandez Fierro, sem er 13 manna argentísk tangóhljómsveit, talin meðal bestu tangóhljómsveita í heimi, hinn margverðlaunaði kúbverski jasspíanóleikari og hljómsveitarstjóri Hilario Duran mætir með tríó sitt, raftónlistarhljómsveitirnar Isan frá Bretlandi og Tarwater frá Þýskalandi, The Go Find, Benni Hemm Hemm, Seabear, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Tómas R Tómasson ásamt Kúbubandinu sínu, Magnús Eiríksson og Blús Kompaníið, Park Project, Hrund Ósk Árnadóttir og fleiri og fleiri.
Frekari uppl. á aimfestival.is og miðar eru seldir á www.midi.is
