Fréttasafn
Langadalsá, leiðrétting
Heil og sæl Harpa,
Var að kíkja á vefinn hjá Lax-á í gær og sá þá fyrirætlun um að leyfa aðeins fluguveiði í Langadalsá fyrir árið 2006. Hef veitt í ánni 26 ár. Rak augun í það að hlutfallið á fluguveiddum væri um 90% en það er ekki rétt.
Ég hef undir höndunum veiðiskýrslur úr Langadalsánni frá 1950 og alla tölfræði úr ánni. Hlutfall fluguveiddra laxa frá árunum 2000 - 2004 getur þú séð hér að neðan. En hlutfallið fer vissulega hækkandi og verður gaman að sjá hvað það verður þegar ég er búinn að fá skýrslu fyrir 2005 í hendurnar.
2000 - 36,8%
2001 - 43,6%
2002 - 56,6%
2003 - 58,0%
2004 - 61,8%
Aðeins meiri fróðleikur um Langadalsána en sumarið 2005 var 3.besta laxveiðiárið í Langadalsá, aðeins árin 1971-1972 toppa það en þá veiddust 455 og 481 laxar á þeim árum. En í tölunni í ár eru 3500 seiða sjógönguseiðasleppingar,sem voru ekki inn í veiðinni árin 71-72.
Aron Jóhannsson
Umhverfisfulltrúi Kölku

