Fréttasafn
Vorljóð frá Sveini á Galtalæk
Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga:
Náttúran hvergi nýtir kák,
nám í skóla ströngum.
Syngur fugl í skógarskák,
skemmtir frúnni löngum
Vaggar Þresti blíður blær,
birtast ýmis verkin.
Farin eru að færast nær,
fínu vorsins merkin
Frá Sveini Sigurjónssyni, Galtalæk
