Fréttasafn
Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð
Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi.
Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu.
Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.
Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com
