Fréttasafn
Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi
Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.
Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir. Að sögn Valgarðs Hilmarssonar, verkefnisstjóra Laxasetursins, er stefnt á opnun á setrinu í sumar en það hefur fengið inni í gamalli rækjuvinnslu á Blönduósi.
„Sko Laxasetrið er hugsað þannig að þetta sé lifandi sýning með laxfiskum. Síðan erum við með í huga að vera með rannsóknarstarfsemi og þjónustu við veiðimenn,“ segir Valgarð.
Valgarður segir að um einstakt safn sé að ræða því líklega séu einungis tvö sambærileg laxasetur í heiminum í dag, í Noregi og Kanada. Laxasetrið á Blöndósi mun því hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, veiðimenn og fjölskyldufólk.
tekið af Ruv.is
.jpg)
