Fréttasafn
Rusl á veiðsvæðum
Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur. Það er ekki gaman fyrir næstu veiðimenn að koma að skítugu veiðihúsi eða árbakka og þurfa að byrja á því að taka til. Við kvetjum þvi veiðimenn til að betri umgengni og að hirða eftir sig rusl.

