Fréttasafn
Sjaldgæfur flækingur fangaður - Sjófugl af Þernuætt
Áhöfnin á togaranum Gunnbirni ÍS fékk óvenjulegan gest um borð er skipið var að veiðum á mánudag norður af landinu. Skipverjar fönguðu gestinn og færðu til hafnar á Ísafirði. Hann reyndist vera sjaldgæfur flækingur, Skeggþerna, sem er sjófugl af þernuætt.
Á vef Náttúrustofu Vestfjarða segir að Skeggþerna hafa einungis tvisvar sést áður hér við land. Fuglinn er líkur kríu og verpir í Evrópu. Um er að ræða farfugl sem flýgur til Vestur Afríku yfir veturinn. Skeggþernunni var gefin loðna að borða og síðan slepptu starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða henni og sást hún fljúga í átt að höfninni í Bolungarvík.
