Fréttasafn
Hávellu fækkar á Lagarfljóti - Skýringar liggja ekki fyrir
Hávellu hefur fækkað á Lagarfljóti undanfarin fimm ár. Hávellan hefur í gegnum tíðina verið meðal algengari kafanda á Lagarfljóti og fjöldinn þar skipt hundruðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Náttúrustofa Austurlands vann fyrir Landsvirkjun og greint er frá í fréttamiðlinum Austurglugganum.
Í fyrrasumar sáust um 100 færri hávellur en árið 2009. Þá var talinn 291 fugl á formlegum athugunardögum á fljótinu. Í skýrslunni segir að skýringar á þessum breytingum liggi ekki fyrir en á tímabilinu hafi Kárahnjúkavirkjun verið gangsett og Lagarfossvirkjun stækkuð. Báðar þessar virkjanir geti haft áhrif á nýtingu kafanda á Lagarfljóti, þó geta aðrar ástæður verið áhrifavaldar t.d. tíðarfar og ástand stofna. Hávella er ein algengasta andartegundin hér á landi. Heldur sig við vötn og tjarnir inn til landsins að sumri, en við sjávarstrendur að vetri.
