Fréttasafn
Lausir dagar í Hólsá - Vestur bakkinn - Nýtt veiðihús
Við eigum lausa daga á þessu skemmtilega og gjöfula veiðisvæði í sumar. Þetta er sjóbirtingsveiði með mjög góðri laxavon á göngutíma þar sem lax gengur upp Hólsá áleiðis í Rangárnar. Veiðisvæðið nær frá Hlöðunni á sveitabænum Borg og niður að ós Hólsár. Nýtt hús var byggt síðast liðið vor. Fjögur svefnherbergi eldhús, salerni og tilheyrandi. Veiðimenn mega mæta í hús klukkutíma eftir að veiðitíma er lokið degi fyrir veiðidag og skulu tæma og ræsta húsið fyrir sama tíma.
Hér eru lausir dagar..
24-29.júní - 4 st
5-8 Ágúst - 4 st
17-19 ágúst - 4 st
23 - 25 ágúst - 4 st
Fyrir áhugasama er um að gera að setja sig í samband við skrifstofuna og bóka sér dag en einnig má ganga beint frá leyfum inn á söluvef okkar www.agn.is
Axeló
531-6108
