Fréttasafn
Sjálfbært laxeldi á Vestfjörðum
Laxeldi hefur gengið í gegnum ýmsar hremmingar í gegnum tíðina, hvort sem litið er til Íslands eða alls heimsins. Það er eftir miklu að slægjast þegar vel gengur en oft hafa sjúkdómar, laxalús og fleira orsakað algjört hrun. Þær þjóðir sem náð hafa árangri í sjókvíaeldi með lax hafa nú brugðist við með því að snúa sér alfarið að kynslóðaskiptu eldi. Það þýðir að aðeins ein kynslóð fiska er höfð á hverjum stað á hverjum tíma og síðan er sá staður hvíldur í tiltekinn tíma.
Þannig á að vera hægt að tryggja nauðsynlega hreinsun svæðanna og koma í veg fyrir óæskileg umhverfisáhrif og sjúkdómasmit til lengri tíma litið. Sjálfbært og vistvænt laxeldi er framtíðarsýn fyrirtækisins Fjarðarlax sem þegar hefur hafið starfssemi í svokölluðu þriggja fjarða módeli vestur á fjörðum.
Landinn, sjónvarpsþáttur á ruv gerði sér ferð vestur..
Hér má sjá umfjöllun Landans um laxeldið:
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4565165/2011/03/06/
Ath.. myndin tengist greininni ekki
