Fréttasafn
Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar
Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.
Slátrun hófst í síðustu viku og er á lokasprettinum. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú, en áformað er að þrefalda eða fjórfalda eldið í næstu umferð og þegar eldið er komið á fullan skrið verði alin 400-500 tonn á ári. Allur fiskurinn er seldur til útlanda, í þetta skiptið á markaði í Sviss. Tvö störf eru nú þegar við eldið auk afleiddra starfa. Ármann Kr. Ólafsson sem einnig er forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er einn eigenda fyrirtækisins.
„Við erum bara nokkrir félagar sem tókum okkur saman. Við fórum að líta í kringum okkur þegar allt breyttist á Íslandi í kjölfar bankahrunsins. Þarna eru menn sem eru vanir eldi, búnir að vera í tugi ára í eldi og svo aðrir sem eru óvanari“ segir Ármann. „Við tókum okkur saman sem sagt og keyptum þessa stöð og keyptum seiði og komum því í gagnið ofan í. Niðurstaðan er allavega sú að við erum byrjaðir að slátra.“
