Fréttasafn
Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl
Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur.
Má frysta Makríl?
Makríllinn er Olíu-ríkur fiskur og ætti að kæla sem fyrst eftir að hafa verið keyptur og helst að borða hann sama dag. Þú getur geymt makrílinn í frysti í ca. 3 mánuði og láta hann síðan þiðna í ískáp fyrir notkun.
Hvernig er best að elda Makríl
Einföld og fljót eldun á Makríl er best. Steikja eða grilla hentar betur en að sjóða makrílinn. Gott er að nota ávöxt við eldun eða gefa með, en það vinnur á móti olíunni í fisknum. Makríllinn hentar vel með austurlenskum keim, t.a.m. engifer, lime, kóríander og kryddi svo eitthvað sé nefnt.
Hvernig á að kaupa Makríl
Nýlega veiddur Makríll er mjög stinnur, augun glær og spegilslétt og tálknin eru djúp rauð. Ef Makríll er orðinn of gamall, þá eru augun skýjuð og tálknin brúnleit.
Hér er svo ein lauflétt uppskrift í lokin
Hráefni
200 gr kartöflur, soðnar og skornar í báta
2 stk makríll
1 msk ólifu olía
½ stk rauðlaukur, skorinn í sneiðar
2 handfylli af rocket salat
1 msk Sherry edik
2 stk appelsínur, skornar í lauf
Salt og pipar
Aðferð
Hreinsið Makrílinn og nuddið 1 msk af ólifu olíu á fiskinn og kryddið með salt og pipar og grillið í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til hann er orðinn eldaður í gegn.
Blandið saman appelsínulaufunum, lauknum, rocket salatinu og kartöflunum í skál og hellið edikinu og 1 msk ólifuolíu yfir og hrærið varlega saman. Kryddið með salt og pipar.
