Fréttasafn

eldiskvi

Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

29.7.2010

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi, Hlífar Karlsson segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg.

Hlífar segir að búið sé að selja bleikju nokkur ár fram í tímann og unnið sé að því að auka framleiðsluna. Þannig að innan tveggja ára verði framleiðslan um 1000 tonn, en nú er hún á sjötta hundrað tonn.

Hlífar telur engan vafa á því að fiskeldi hér á landi eigi sér bjarta framtíð.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arnor_isfjord_95cm1

31.8.2010 : Nokkrum stórum landað í Langadalsá

Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(8)

20.8.2010 : Langadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni

Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP1505

19.8.2010 : Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar

Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ranga Ytri151

19.8.2010 : Haust Tilboð Hótel Rangá!!

Superior (standard) eins manns kr. 13.900.- Superior (standard) tveggja manna kr. 8.900.- á mann (kr. 17.800.- fyrir tvo) Morgunverðarhlaðborð er innfalið Kvöldverður (half board - 3 rétta) kr. 6.500.- á mann Hádegis-/kvöldverðir (full board) kr. 8.900.- á mann Lesa meira
 
Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar