Fréttasafn
Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum
Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna. Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi. Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar. Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..
