Fréttasafn
Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!
Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni.
Skipulags- og byggingarnefnd hafnar erindinu þar sem ánamaðkaræktun falli ekki undir skilgreiningu á orkufrekri stóriðju, en samkvæmt aðalskipulagi er lóðin ætluð undir slíkan iðnað. Nefndin telur það hinsvegar mögulegt að útvega Sigurjóni allt að 50 hektara af landbúnaðarlandi við Saltvík sunnan Húsavíkur til ánamaðkaræktunar.
frétt á www.ruv.is
