Rusl á veiðsvæðum
Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.
Lesa meiraNýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út
Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo axelo@lax-a.is
Þriðja hver rjúpa án unga
Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is
Gæsaveiðin fer rólega af stað
Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs
Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.
Lesa meira
Lausar stangir næstu daga
Laxveiði í Skotlandi
Hross í kringum veiðisvæði Hallá
Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.
Lesa meira