Fjölgun örlaxa í ám skv nýrri rannsókn
Rannsóknir Veiðimálastofnunar sýna að svokölluðum örlöxum, löxum af stærðinni 43 til 50 sentimetrar, hefur fjölgað í ám á Austur- og Norðausturlandi á undanförnum árum. Kenningar um smæð þessara laxa standast hins vegar ekki. Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur hjá VMST, segir að nokkur umræða hafi verið um mjög smáa laxa sem hafa veiðst undanfarin ár. Var talið að hér væru fiskar sem hefðu farið út að vori sem stór gönguseiði og komið inn aftur samsumars..Axelo axelo@lax-a.is
Ársfundur settur 6.mai hjá veiðimálastofnun
Ársfundur Veiðimálastofnunar verður haldinn föstudaginn 6. maí. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum, í bíósal og hefst kl. 14. Dagskrá fundarins verður með hefðbundu sniði og farið yfir helstu þætti starfseminnar á síðasta ári. Veiðitölur verða kynntar og nokkur erindi flutt, sem tengjast rannsóknum stofnunarinnar. Dagskrá fundarins má sjá með því að smella á Lesa meira..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fiskrannsóknir í Lagarfljóti og Þverám - Höfðu breytingar áhrif?
Kárahnjúkavirkjun og veitur henni tengdar snerta beint nokkur vatnsföll á vatnasviðum Jökulsár á Dal og Lagarfljóts, s.s. hvað varðar rennsli, grugg og vatnshita. Talið var að þessar breytingar myndu hafa áhrif á lífríki vatnsfallanna og voru rannsóknir gerðar á fiskstofnum á svæðinu áður en rekstur virkjunarinnar hófst 2007. Rannsóknirnar á fiskstofnum voru síðan endurteknar á sambærilegan máta sumarið 2010..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
4 stangir í Víðidalsá
Sjaldgæfan höfrung rak á fjöru
Sjaldgæfa höfrunga tegund rak á land í Víkurfjöru aðfararnótt 2. apríl. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar segir Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur að um sé að ræða stökkul (Tursiops truncatus). „Hann telst til sjaldgæfra flækingstegunda við Ísland en er algengur sunnar í N-Atlantshafi og í öllum hitabeltis- og tempruðu hafsvæðunum."Axelo axelo@lax-a.is
Sjaldgæfur flækingur fangaður - Sjófugl af Þernuætt
Áhöfnin á togaranum Gunnbirni ÍS fékk óvenjulegan gest um borð er skipið var að veiðum á mánudag norður af landinu. Skipverjar fönguðu gestinn og færðu til hafnar á Ísafirði. Hann reyndist vera sjaldgæfur flækingur, Skeggþerna, sem er sjófugl af þernuætt..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hávellu fækkar á Lagarfljóti - Skýringar liggja ekki fyrir
Hávellu hefur fækkað á Lagarfljóti undanfarin fimm ár. Hávellan hefur í gegnum tíðina verið meðal algengari kafanda á Lagarfljóti og fjöldinn þar skipt hundruðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Náttúrustofa Austurlands vann fyrir Landsvirkjun og greint er frá í fréttamiðlinum Austurglugganum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Lögreglan varar við skotvopna þjófum
Lögregla hefur vísbendingar um að glæpamenn ætli sér að komast yfir skotvopn á stöðum þar sem þau eru seld eða geymd. Lögreglumenn heimsóttu fjölda sölustaða í gær, og fóru yfir öryggismál með starfsmönnum..Axelo axelo@lax-a.is Lesa meira
Lausir dagar í Hólsá - Vestur bakkinn - Nýtt veiðihús
Við eigum lausa daga á þessu skemmtilega og gjöfula veiðisvæði í sumar. Þetta er sjóbirtingsveiði með mjög góðri laxavon á göngutíma þar sem lax gengur upp Hólsá áleiðis í Rangárnar. Veiðisvæðið nær frá Hlöðunni á sveitabænum Borg og niður að ós Hólsár. Nýtt hús var byggt í fyrra, 4 svefnherbergi, eldhús, salerni og tilheyrandi.. Axelo axelo@lax-a.is
