Alvarlegt Klórslys í Noregi - Veldur miklum skaða
Alvarlegt klórslys varð í Akerselva í S-Noregi við upphaf marsmánaðar. Áin, sem rennur gegnum miðborg Oslóar, er mikil náttúruperla og hafa norðmenn lagt mikla fjármuni í verndun lífríkis hennar á síðustu árum og áratugum. Atvikið varð með þeim hætti að rör í vatnshreinsistöð gaf sig og runnu í kjölfarið 6 þúsund lítrar af klórlausn til árinnar við útfall Maridalsvannet, þar sem áin á upptök sín..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Sjálfbært laxeldi á Vestfjörðum
Laxeldi hefur gengið í gegnum ýmsar hremmingar í gegnum tíðina, hvort sem litið er til Íslands eða alls heimsins. Það er eftir miklu að slægjast þegar vel gengur en oft hafa sjúkdómar, laxalús og fleira orsakað algjört hrun. Þær þjóðir sem náð hafa árangri í sjókvíaeldi með lax hafa nú brugðist við með því að snúa sér alfarið að kynslóðaskiptu eldi..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Átaksverkefni í Minkaveiðum á Íslandi kynnt með ráðstefnu
Ráðstefna um hvernig sé best að haga minkaveiðum verður haldin á Grand Hótel, 14. mars 2011, kl. 13-16. Tilgangur ráðstefnunnar er annars vegar að kynna árangur verkefnisins og niðurstöður rannsókna og hins vegar að velta upp spurningum um framtíðarfyrirkomulag minkaveiða í ljósi þeirra upplýsinga sem verkefnið hefur dregið fram. Ráðstefnan verður einnig send beint út á netinu og skv www.ust.is eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
41 árs gamall fýll veiddur við Stórhöfða
Fýll sem kom í net við Eyjólfsklöpp suðvestur af Heimaey um miðjan febrúar, reyndist vera að minnsta kosti fjörtíu og eins árs gamall. Fuglinn var merktur og kom í ljós að Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða hafði merkt þennan fýl fullorðinn í Stórhöfða 17. október 1970..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira