Fréttasafn
Fuglafriðland í Borgarfirði - Andakíll orðinn að Ramsar svæði!
Lönd Hvanneyrar í Andakíl í Borgarfirði og næstu jarða við hafa verið gerð að fuglafriðlandi. Umhverfisráðherra staðfesti það við athöfn á Hvanneyri í dag. Þá verður nýja friðlandið í Andakíl tilnefnt sem Ramsar-svæði. Ramsar-samningurinn, sem samþykktur var í Ramsar í íran 1971 er alþjóðlegur samningur um votlendisvernd. Stjórnendur Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og landeigendur þar í kring telja að Andakíllinn falli vel að þessum sáttmála enda gangast þeir undir ákveðnar kvaðir með friðun svæðisins.
Björn Þorsteinsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, segir að skotveiðar á fuglum verði bannaðar á landareigninni. Þetta feli einnig í sér takmarkanir á framræslu votlendis. Hún verði ekki heimiluð nema að því leyti að menn megi halda við skurðum sem séu þegar í ræktun.
Björn segir það skyldu þjóðarinnar að standa með náttúrunni og þegar um sé að ræða fuglastofna sem standi höllum fæti. Fækkun hafi sem dæmi verið í blesgæsastofninum af ókunnum ástæðum. Írar, Skotar og Grænlendingar hafi stofnað Ramsar-svæði einmitt til að vernda þennan stofn. Björn segir að nú sé komið að Íslendingum að uppfylla sínar skyldur gagnvart þessum stofni.
frétt fengin af www.ruv.is
frettir@ruv.is
