Fréttasafn

kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Myndadiskur_2004_023

24.8.2011 : Þriðja hver rjúpa án unga

Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
sk1

22.8.2011 : Gæsaveiðin fer rólega af stað

Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

19.8.2011 : Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

18.8.2011 : Lausar stangir næstu daga

Við eigum spennandi stangir lausar næstu daga og í næstu viku. Veiðin hefur verið að taka við sér í flest öllum ám og Rangárnar að gefa þriðjahvern lax sem veiðist á landinu. Frábært tækifæri til að skreppa í laxveiði. johann@lax-a.is Lesa meira
 
DEE200712

5.8.2011 : Laxveiði í Skotlandi

Við eigum lausar stangir í haust í áni Dee nánar tiltekið á Lower Crathes svæðinu. Laxveiðin í Skotlandi nær hámarki á vorin og á haustin og er því um að ræða frábæran tíma í áni. Veiðin er í rólegra móti um mitt sumar en þrátt fyrir það eru á meðaltali 130 laxar að veiðast á viku í allri áni. Lesa meira
 
Halla_05_HakanSteenlund_200

3.8.2011 : Hross í kringum veiðisvæði Hallá

Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.

Lesa meira
 
Grahegri

18.7.2011 : Nýr Íslenskur fuglavísir - Tilvalinn fyrir veiðimenn

Íslenskur fuglavísir er líklega ein þeirra bóka sem íslenskum ferðalöngum finnst ómissandi í sumarfríið. Þessi vinsæla bók er nú komin út í endurbættri útgáfu. Í þessarri nýju útgáfu hafa um fjörutíu fuglategundir bæst við frá fyrri útgáfum og er þetta rit bæði á íslensku og ensku tungumáli..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Selur

15.7.2011 : Talning á Selum í Húnaflóa 5 árið í röð

Selasetrið á Hvammstanga stendur fyrir árlegri selatalningu meðfram ströndinni í innanverðum Húnaflóa, á sunnudaginn. Er þetta fimmta árið í röð sem að sjálfboðaliðar ganga ströndina og telja seli. Strandlengjunni er skipt upp í 27 misstór svæði sem öll eru talin á sama tíma til að koma í veg fyrir tvítalningu..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
Axelo á hreindýri

15.7.2011 : Hreindýraveiðar hófust í gær - Fyrsti tarfurinn felldur

Leyfilegt var að hefja veiðar á hreindýrstörfum á miðnætti í nótt. Svo virðist sem einhverjir veiðimenn hafi drifið sig af stað því fyrsti tarfurinn var felldur í nótt í Búlandsdal. Þoka er nú í fjöllum á Héraði og rigning og því erfiðar aðstæður til veiða..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
svarta,_nytt_eldhus

3.6.2011 : Breytingar á veiðihúsinu við Svartá klárar

Veiðihúsið við Svartá í Svartárdal hefur fengið á sig nýja mynd.  Eftir að hafa þjónustað veiðimenn undanfarna áratugi við góðan orðstír var ákveðið að ganga í breytingar og endurnýja t.d. eldhús álmuna. Eins og myndirnar bera með sér þá er útkoman  æðisleg og má búast við því að veiðimenn  fari nú þegar að skipuleggja matseðilinn fyrir veiðitúrinn..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Gasahret

1.6.2011 : Vorhretið erfitt fyrir Gæsina - Mikið varp hefur misfarist

Á vef Náttúrustofu Austurlands segir, að allflest heiðagæsahreiður hafi misfarist á kafla á Jökuldal í vorhretinu fyrir rúmri viku. Á einu svæði í Jökuldalsheiði hafi hins vegar aðeins sjötta hvert heiðagæsahreiður undir snjó og þannig misfarist sem verði að teljast vel sloppið miðað við aðstæður.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
happyhour-holt

25.5.2011 : Gallery Restaurant/ Hótel Holt

Veitingastaðurinn á Hótel Holti, Gallery Restaurant, hefur allt frá opnun þess árið 1965 verið í allra fremstu röð á Íslandi. Tímarnir breytast en ógleymanlegar kvöldstundir á Holtinu eru eitthvað sem alltaf er hægt að treysta á.
Gallery Restaurant hefur aldrei verið betri en nú, hvort sem um er að ræða kvöldverð í félagsskap fjölskyldu og vina eða gómsætan hádegisverð Lesa meira
 
Manuel Plosser 1

28.4.2011 : Fjölgun örlaxa í ám skv nýrri rannsókn

Rannsóknir Veiðimálastofnunar sýna að svokölluðum örlöxum, löxum af stærðinni 43 til 50 sentimetrar, hefur fjölgað í ám á Austur- og Norðausturlandi á undanförnum árum. Kenningar um smæð þessara laxa standast hins vegar ekki. Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur hjá VMST, segir að nokkur umræða hafi verið um mjög smáa laxa sem hafa veiðst undanfarin ár. Var talið að hér væru fiskar sem hefðu farið út að vori sem stór gönguseiði og komið inn aftur samsumars..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Picc 01

28.4.2011 : Ársfundur settur 6.mai hjá veiðimálastofnun

Ársfundur Veiðimálastofnunar verður haldinn föstudaginn 6. maí. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum, í bíósal og hefst kl. 14. Dagskrá fundarins verður með hefðbundu sniði og farið yfir helstu þætti starfseminnar á síðasta ári. Veiðitölur verða kynntar og nokkur erindi flutt, sem tengjast rannsóknum stofnunarinnar. Dagskrá fundarins má sjá með því að smella á Lesa meira..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
rain

28.4.2011 : Fiskrannsóknir í Lagarfljóti og Þverám - Höfðu breytingar áhrif?

Kárahnjúkavirkjun og veitur henni tengdar snerta beint nokkur vatnsföll á vatnasviðum Jökulsár á Dal og Lagarfljóts, s.s. hvað varðar rennsli, grugg og vatnshita. Talið var að þessar breytingar myndu hafa áhrif á lífríki vatnsfallanna og voru rannsóknir gerðar á fiskstofnum á svæðinu áður en rekstur virkjunarinnar hófst 2007. Rannsóknirnar á fiskstofnum voru síðan endurteknar á sambærilegan máta sumarið 2010..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
13.07.09_1

28.4.2011 : 4 stangir í Víðidalsá

4 stangir voru að losna í Víðidalsá frá 14. til 18. júlí. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Hörpu Hlín, harpa@lax-a.is Lesa meira
 
hofrungur

13.4.2011 : Sjaldgæfan höfrung rak á fjöru

Sjaldgæfa höfrunga tegund rak á land í Víkurfjöru aðfararnótt 2. apríl. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar segir Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur að um sé að ræða stökkul (Tursiops truncatus). „Hann telst til sjaldgæfra flækingstegunda við Ísland en er algengur sunnar í N-Atlantshafi og í öllum hitabeltis- og tempruðu hafsvæðunum."Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skeggterna

13.4.2011 : Sjaldgæfur flækingur fangaður - Sjófugl af Þernuætt

Áhöfnin á togaranum Gunnbirni ÍS fékk óvenjulegan gest um borð er skipið var að veiðum á mánudag norður af landinu. Skipverjar fönguðu gestinn og færðu til hafnar á Ísafirði. Hann reyndist vera sjaldgæfur flækingur, Skeggþerna, sem er sjófugl af þernuætt..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Havellusteggir_2

12.4.2011 : Hávellu fækkar á Lagarfljóti - Skýringar liggja ekki fyrir

Hávellu hefur fækkað á Lagarfljóti undanfarin fimm ár. Hávellan hefur í gegnum tíðina verið meðal algengari kafanda á Lagarfljóti og fjöldinn þar skipt hundruðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Náttúrustofa Austurlands vann fyrir Landsvirkjun og greint er frá í fréttamiðlinum Austurglugganum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Siberia_3

12.4.2011 : Lögreglan varar við skotvopna þjófum

Lögregla hefur vísbendingar um að glæpamenn ætli sér að komast yfir skotvopn á stöðum þar sem þau eru seld eða geymd. Lögreglumenn heimsóttu fjölda sölustaða í gær, og fóru yfir öryggismál með starfsmönnum..Axelo axelo@lax-a.is Lesa meira

 

5.4.2011 : Lausir dagar í Hólsá - Vestur bakkinn - Nýtt veiðihús

Við eigum lausa daga á þessu skemmtilega og gjöfula veiðisvæði í sumar. Þetta er sjóbirtingsveiði með mjög góðri laxavon á göngutíma þar sem lax gengur upp Hólsá áleiðis í Rangárnar. Veiðisvæðið nær frá Hlöðunni á sveitabænum Borg og niður að ós Hólsár. Nýtt hús var byggt í fyrra, 4 svefnherbergi, eldhús, salerni og tilheyrandi.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
ACR027DET1

23.3.2011 : Alvarlegt Klórslys í Noregi - Veldur miklum skaða

Alvarlegt klórslys varð í Akerselva í S-Noregi við upphaf marsmánaðar. Áin, sem rennur gegnum miðborg Oslóar, er mikil náttúruperla og hafa norðmenn lagt mikla fjármuni í verndun lífríkis hennar á síðustu árum og áratugum. Atvikið varð með þeim hætti að rör í vatnshreinsistöð gaf sig og runnu í kjölfarið 6 þúsund lítrar af klórlausn til árinnar við útfall Maridalsvannet, þar sem áin á upptök sín..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

8.3.2011 : Sjálfbært laxeldi á Vestfjörðum

Laxeldi hefur gengið í gegnum ýmsar hremmingar í gegnum tíðina, hvort sem litið er til Íslands eða alls heimsins. Það er eftir miklu að slægjast þegar vel gengur en oft hafa sjúkdómar, laxalús og fleira orsakað algjört hrun. Þær þjóðir sem náð hafa árangri í sjókvíaeldi með lax hafa nú brugðist við með því að snúa sér alfarið að kynslóðaskiptu eldi..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
minkur

7.3.2011 : Átaksverkefni í Minkaveiðum á Íslandi kynnt með ráðstefnu

Ráðstefna um hvernig sé best að haga minkaveiðum verður haldin á Grand Hótel, 14. mars 2011, kl. 13-16. Tilgangur ráðstefnunnar er annars vegar að kynna árangur verkefnisins og niðurstöður rannsókna og hins vegar að velta upp spurningum um framtíðarfyrirkomulag minkaveiða í ljósi þeirra upplýsinga sem verkefnið hefur dregið fram. Ráðstefnan verður einnig send beint út á netinu og skv www.ust.is eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
fíll

7.3.2011 : 41 árs gamall fýll veiddur við Stórhöfða

Fýll sem kom í net við Eyjólfsklöpp suðvestur af Heimaey um miðjan febrúar, reyndist vera að minnsta kosti fjörtíu og eins árs gamall. Fuglinn var merktur og kom í ljós að Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða hafði merkt þennan fýl fullorðinn í Stórhöfða 17. október 1970..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
blesgasir

3.2.2011 : Fuglafriðland í Borgarfirði - Andakíll orðinn að Ramsar svæði!

Lönd Hvanneyrar í Andakíl í Borgarfirði og næstu jarða við hafa verið gerð að fuglafriðlandi. Umhverfisráðherra staðfesti það við athöfn á Hvanneyri í dag. Þá verður nýja friðlandið í Andakíl tilnefnt sem Ramsar-svæði. Ramsar-samningurinn, sem samþykktur var í Ramsar í íran 1971 er alþjóðlegur samningur um votlendisvernd. Stjórnendur Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og landeigendur þar í kring telja að Andakíllinn falli vel að þessum sáttmála enda gangast þeir undir ákveðnar kvaðir með friðun svæðisins..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Axelo á Hreindýri 2

31.1.2011 : Kvóti fyrir Hreindýr talsvert minni en í fyrra

Leyft verður að veiða 1.001 hreindýr á næsta veiðitímabili, samkvæmt auglýsingu umhverfis ráðuneytisins í Lögbirtingablaðinu í dag. Það er nokkru færri hreindýr en leyft var að veiða í fyrra en þá var leyft að veiða 1.272 dýr. Þessi ákvörðun á kvóta er veitt með þeim fyrirvara að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð sem kalli á endurskoðun fjölda veiðiheimilda..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
halla3

28.1.2011 : Ný leið til að svala veiðiþorstanum yfir vetrartímann

Nú ættu önnum kafnir borgarbúar með veiðidellu að gleðjast því japanski leikfangarisinn Tomy mun innan tíðar gefa út sýndarveiðistöng sem kallast „Virtual Masters Real“ og gerir notendum kleift að „veiða“ hvar sem er. Stöngin, sem er í lófastærð og býr yfir veiðihjóli og skjá, kemur á japanskan markað í júlímánuði og mun kosta tæplega sexþúsund og þrjúhundruð japönsk jen, eða tæpar níuþúsund íslenskar krónur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
rebbi kallinn

28.1.2011 : Refaveiðar samræmast ekki tilskipunum Evrópu sambandsins

Refaveiðar samræmast ekki tilskipunum Evrópusambandsins, sem vill alfarið friða refi. Þá vill sambandið að ríkið tryggi refum friðlönd innan landamæra sinna. Málið hefur komið til umræðu á svonefndum rýnifundum í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusamabndinu. Að sögn Bændablaðsins duga þau litlu frávik sem eru á tilskipunum sambandsins um refi, hvergi nærri til að halda uppi refaveiðum hér á landi, eins og verið hefur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Gæs

24.1.2011 : Salatbar fyrir Gæs í Vatnsmýrinni

Fjöldi gæsa hefur sést spóka sig í sótsvartri Vatnsmýrinni í kjölfar sinubrunans sem varð þar fyrir stuttu. Einhverjum þykir það eflaust furðulegt að gæsir sæki þangað. Raunin er sú að aðstæður í Vatnsmýrinni hafa sjaldan verið eins hagstæðar fyrir gæsir á þessum tíma árs..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar