Stærsti Hreintarfurinn vóg 133kg - Veiddur á sv 6
Þyngsti Hreintarfurinn sem felldur var á tímabilinu vóg hvorki meira né minna en 133kg. Hann var felldur á svæði 6, nánar tiltekið upp við Ódáðavötn. Veiðimaður var Jón Helgason og leiðsögumaður hans var Jóhann Steindórsson. Eins og áður hefur komið fram var allur kvótinn nýttur í ár og spurning hvað gerist fyrir næsta ár. Mikið hefur verið rætt um að breyta þurfi skipulagi úthlutunar og þessháttar en það verður afar fróðlegt að sjá hvað hæstvirtur frú!!, Umhverfisráðherra gerir í þeim efnunum..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Sjaldséðir erlendir gestir yfir hátíðarnar - Spurning um landnám?
Brúnheiðar og gráhegrar eru meðal erlendra fuglasem dvelja á landinu um hátíðarnar þrátt fyrir frost og napra vinda. Í hópi hinna erlendu gesta eru æðardrottingar, silkitoppur, glóbrystingar, bókfinkur, bleshæna og keldusvín. Búnheiðirinn (Circus aeruginosus) er sjaldgæfur fugl hér á landi, en á óðul sín í Evrópu og Asíu frá suðri og allt norður á Skán í Svíþjóð. En með hlýnandi loftslagi er hugsanlegt að hann hyggi á landnám hér í norðri..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraAðgengi að veiðiám torveldað?
Erfitt verður að komast að veiðiám og -vötnum, verði frumvarp um breytingar á náttúruverndarlögum samþykkt. Þetta segir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga. Þá virðist frumvarpið koma í veg fyrir að smala megi á fjórhjóli..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraOpna stjórnvöld augun? - Hægt að auka arðsemi Hreindýraveiða
Auka mætti arðsemi hreindýraveiða með því að breyta kerfinu og selja veiðileyfin á markaðsverði. Þetta segir hagfræðingur sem skoðað hefur efnahagsleg áhrif skotveiða á Íslandi. Hagsmunaaðilar eru sammála um að ónýtt tækifæri séu í skotveiðitengdri ferðaþjónustu..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Flundra ógnar bleikjustofni Hvítár - Fræðingar benda á hlýnun
Bleikjan, Salvelinus alpinus, er að margra áliti einhver besti matfiskur sem völ er á og sportveiðimönnum leiðist heldur ekki að glíma við bleikjuna í ám og vötnum. Nú bregður hinsvegar þannig við að bleikjustofninn á undir högg að sækja. Á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði var ársveiðin um fjögur þúsund bleikjur fyrir örfáum árum en hefur hrapað niður í aðeins fjögur hundruð fiska..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Rjúpnaveiðinni lýkur nú um helgina
Nú rennur í garð síðasta helgin fyrir Rjúpnaskyttur landsins og má búast við að margir flykkist út og noti tækifærið til að ná í Jólasteikina. Það verður að segjast að árið í ár er búið að vera köflótt í veiðum, almenningur gefur frekar lítið á meðan að lokuðu prívat svæðin gefa vel. Spyr maður sig þá hvort ekki sé vænlegra að leigja sér land einhversstaðar heldur en að ganga almenning þó það sé nú alltaf jafn ánægjulegt..Axelo axelo@lax-a.is
Ný bók frá Bendernum - Á allra færi
„Á allra færi“ er handhæg og auðlesin bók um stangveiði. Hún er fyrir alla fjölskylduna og er ætlað að efla áhuga hennar á veiði og útiveru. Bókin er samvinnuverkefni hjónanna Auðar I. Ottesen og Páls Jökuls Péturssonar og Gunnars Bender. Útgefandi er Sumarhúsið og garðurinn. Fjallað er um ár og fjölskylduvæn veiðivötn, helstu þætti stangveiði, veiðiaðferðir og klæðnað. Í bókinni er einnig fróðleikur um fisktegundir og nokkrar góðar uppskriftir fljóta með..Axelo axelo@lax-a.is
Laxveiðin í Skotlandi byrjar 1sta Febrúar
Fyrir þá sem hvað mestan þorstan hafa fyrir laxveiðinni og kitlar núna hressilega í fingurna um að komast í veiði þá er gaman að segja frá því að laxveiðin hefst í Skotlandi 1 feb nk. það hefur gengið vel hjá okkur að selja á veiðisvæðin okkar í Dee og nú er svo komið að opnunardagarnir eru þeir einu sem við eigum lausa. Veiðin í opnun fer eftir veðri en hefur yfirleitt gefið þónokkra laxa. Áhugasamir geta haft samband við okkur hér á skrifstofunni fyrir frekari upplýsingar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Fleiri Hreindýr skotin í óleyfi fyrir austan
Komið hefur í ljós að fimm hreindýr voru skotin í óleyfi í Hvaldal, sunnan Álftafjarðar á Suðausturlandi, í byrjun vikunnar. Í fyrstu var talið að dýrin hefðu verið tvö, en við nánari eftirgrennslan fundust hræ af þremur dýrum til viðbótar. Tvö dýranna höfðu verið skotin um fimmtíu metra frá þjóðvegi eitt, en innar í dalnum komu í ljós leifar af fleiri dýrum..Axelo axelo@lax-a.is Lesa meira
Veiðisvæðin okkar að detta í sölu á netinu
Veiðisvæðin eru þessa daganna að detta í vefsölu hjá okkur eitt af öðru. Nú þegar má þar finna fimm svæði, Hólsá, silungasvæði Svartár, Brynjudalsá, Norðlingafljót og silungasvæði Tungufljóts. Áhugasamir geta skoðað lausa daga inn á söluvef okkar www.agn.is . Nú er því um að gera að skella sér inná vefinn og tryggja sér örugga daga fyrir næsta sumar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Nú styttist í að veiðitímabilið hefjist í Argentínu
Veiðitímabilið fer að fara af stað í Rio Grande, Argentínu á næstu dögum. Þar er sem fyrr hinn alræmdi sjóbirtingur sem menn eru að eltast við. Ferðalagið til Argentínu er annsi langt en hverrar mínútu virði. Veiðin er frábær, öll þjónusta við veiðimenn sem og aðbúnaður til fyrirmyndar. Sem fyrr mun lax-á bjóða uppá ferðir þangað fyrir viðskiptavini sína, áhugasamir geta haft samband hingað á skrifstofuna fyrir frekari upplýsingar..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Háhyrningar á fuglaveiðum í Berufirði
Háhyrningar eru þekktir af sérstökum veiðiaðferðum, en stundum getur þó verið erfitt að greina á milli þess hvort þeir ráðast að bráð vegna svengdar eða hvort um leik sé að ræða. Síðastliðinn mánudag mátti sjá þegar fjórir háhyrningar syntu um Berufjörð og var atgangur mikill þar sem þeir réðust að hverjum fuglahópnum á fætur öðrum alveg uppi í landsteinum..axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira